Innlent

Ár liðið frá stórbrunanum í Skeifunni

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Slökkviliðsmaður berst við eldinn.
Slökkviliðsmaður berst við eldinn. vísir/valli
Í dag er ár liðið frá því að stórbruni varð í Skeifunni 11 en húsið brann til kaldra kola og bókaverslunin Griffill, Rekstrarland og Efnalaugin Fönn með því. Eldurinn kviknaði við þvottagrindur sem stóðu við strauvélar í húsnæði Fannar. Að auki náði eldurinn að læsa sér í húsnæði Tandoori og Promennt.

Allt tiltækt slökkviliðs var kallað út til að bjarga því sem bjargað varð en þegar upp var staðið var ekki mikið eftir af því sem áður stóð á reitnum. Mikinn reyk lagði af svæðinu og voru íbúar höfuðborgarsvæðisins beðnir um að loka gluggum og kynda vel inni hjá sér.

Húsnæðið sem brann taldi um 8.200 fermetrar og var brunabótamat þess 1,8 milljarðar króna. Að auki urðu vörur og húsgögn eldinum að bráð.

Fjöldi manns safnaðist saman við brunann og fylgdist með slökkvistarfi. Meðal þeirra sem voru á vettvangi má nefna ljósmyndara Vísis, þá Andra Marinó Karlsson, Valgarð Gíslason, Vilhelm Gunnarsson og Daníel Rúnarsson og má sjá nokkrar myndir frá þeim hér í fréttinni. Einnig má sjá myndbönd sem tekin voru af eldinum.

vísir/andri marinó
vísir/andri marinó
vísir/andri marinó
vísir/andri marinó
vísir/andri marinó
vísir/valli
vísir/valli
vísir/valli
vísir/vilhelm
vísir/vilhelm
vísir/daníel

Tengdar fréttir

„Ég bara lokaði glugganum og það bjargaði skrifstofunni“

Jón Magnússon lögmaður vill yfirleitt hafa glugga í kringum sig opna og loftið ferskt. En einhverra hluta vegna lokaði hann glugganum á skrifstounni sinni í Skeifunni rétt fyrir brunann. Það, og gott starf slökkviliðsins, bjargaði skrifstofunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×