Fréttir

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Runólfur verður á­fram for­stjóri

Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, hefur fallist á beiðni ráðherra um að sinna áfram starfi forstjóra og hefur skipun hans verið framlengd til ársloka 2029. 

Innlent
Fréttamynd

„Við getum ekki öll búið í Reykja­vík“

Sveitarstjóri Múlaþings segir að viðbót við Loftbrú, sem innviðaráðherra greindi frá í gær, sé ekki það sem verið sé að kalla eftir. Ekki geti allir búið í Reykjavík og jafna verði aðgengi íbúa landsbyggðar að þjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagn­rýni Jóns Gnarr

Varaformaður Þingflokks Viðreisnar segist ekki hafa sóst eftir því að verða gerð að þingflokksformanni. Aðspurð hvernig hún svari gagnrýni Jóns Gnarr segir hún að engar athugasemdir hafi verið gerðar við stöðu hennar innan þingflokksins að henni vitandi. Rætt verður við Maríu Rut Kristinsdóttur í hádegisfréttum.

Innlent
Fréttamynd

Tókst ekki moða neitt úr miðjunni

Leiðtogi sænska Miðflokksins segir að ekki sé meirihluti á þingi til þess að mynda miðjustjórn. Miðflokkurinn fékk stjórnarmyndunarumboð í síðustu viku eftir að jafnaðarmönnum mistókst að mynda vinstrimeirihluta.

Erlent
Fréttamynd

Enn enginn grunaður um inn­brotið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar enn innbrot í Dalsbú í Mosfellsdal í lok júlí, sem varð til þess að mikill fjöldi minka gekk laus um Mosfellsdal og nágrenni. Enginn er grunaður en vonir standa til að málið verði leyst fljótlega.

Innlent
Fréttamynd

Mismunuðu kven­kyns sérfræðilækni Land­spítalans

Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að Landspítali hafi mismunað kvenkyns sérfræðilækni í launum á grundvelli kyns. Úrskurðurinn var kveðinn upp 26. ágúst og tekur til launa konunnar á árunum 2020 til 2023 í samanburði við þrjá karlkyns sérfræðilækna.

Innlent
Fréttamynd

Hafi ekki fundað form­lega án Harðar heldur snætt há­degis­mat

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir enga formlega stjórnarfundi Landsvirkjunar hafa verið haldna án Harðar Arnarsonar fyrrverandi forstjóra. Hann segir lögin ekki banna stjórnarmönnum að hittast sem hafi borðað saman hádegismat fyrir fundina. Ágreiningurinn snúist um form en ekki stefnu.

Innlent
Fréttamynd

Fundu auðgað úran í dánar­búi

Geislavirkt efni sem fannst í dánarbúi manns í Suður-Finnlandi árið 2024 reyndist vera auðgað úran frá Sovétríkjunum. Lögregla segir óljóst hvernig látni maðurinn eignaðist efnið en það er ekki talið hafa verið bráðhættulegt.

Erlent
Fréttamynd

„Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráð­herrann“

Meðlimir skólamálanefndar Skólastjórafélags Íslands segja að nemendur í útskriftarárgangi næsta vors í grunnskólum landsins hafi verið gerðir að tilraunahópi fyrir illa ígrundaðar breytingar á einkunnakerfi grunnskóla. Þá fagnar hópurinn því að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hafi hafið frumkvæðisathugun á innleiðingu nýs einkunnakerfis.

Innlent
Fréttamynd

Djúp lægð úr suðri fer að hafa á­hrif í kvöld

Djúp lægð úr suðri nálgast landið næsta sólarhringinn og fer að hafa áhrif á landsmenn í kvöld með vaxandi norðaustanátt og vætu. Á morgun verður strekkings eða allvöss norðaustanátt á landinu með rigningu, einkum fyrir norðan og austan, fer heldur hlýnandi.

Innlent
Fréttamynd

Tóku á móti barni í sjúkra­bíl

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins tók á móti barni í sjúkrabíl í gær. Að sögn slökkviliðsins var um að ræða myndarlegan dreng, gekk fæðing vel og heilsast móður og barni mjög vel.

Innlent
Fréttamynd

Ó­væntur sigur Lula en Bol­sonaro vill ó­gilda úr­slitin

Sitjandi forseti Brasilíu, Lula da Silva, hafði betur gegn hægri manninum Flavio Bolsonaro í forsetakosningunum í Brasilíu í gær. Er þetta í fyrsta sinn sem frambjóðandi nær að snúa við úrslitum frá því í fyrri umferð kosninganna en Bolsonaro segir úrslitin óútskýranleg.

Erlent
Fréttamynd

„Noregur sökkar“

Donald Trump Bandaríkjaforseti kallaði Noreg skítaland og sagði hann sökka á kosningafundi í Michiganríki í dag. Ummælin lét hann falla þegar hann velti sér upp úr því að hafa ekki hlotið friðarverðlaun Nóbels.

Erlent
Fréttamynd

Vučić játar ó­sigur

Aleksandar Vučić formaður stjórnarflokks Serbíu hefur viðurkennt ósigur sinn í skyndikosningum til þings sem fóru fram þar í landi í dag.

Erlent
Fréttamynd

Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić

Kjörsókn stefnir í að verða sú mesta í þingkosningunum í Serbíu frá upplausn Júgóslavíu þar sem stúdentahreyfing freistar þess að binda enda á rúmlega áratugarlanga valdatíð Aleksandars Vučić og Serbneska framfaraflokksins, SNS.

Erlent
Fréttamynd

Leikur á hnífs­egg í Brasilíu

Brasilíumenn ganga í dag að kjörborðinu í seinni umferð forsetakosninga þar sem sitjandi forsetinn Luiz Inácio Lula da Silva etur kappi við Flávio Bolsonaro, öldungadeildarþingmann og elsta son fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro.

Erlent
Fréttamynd

Stjórnar­skráin trompi alltaf bókun 35

Hafsteinn Dan Kristjánsson lagaprófessor telur ekki mikinn vafa leika á því að hægt sé að lögfesta svokallaða bókun 35 án þess að brjóta gegn stjórnarskrá. Hann segir þó líklegt að látið verði reyna á málið mjög fljótlega fyrir dómstólum verði frumvarpið samþykkt.

Innlent