Lífið

Annar tveggja hringa Leoncie fundinn

Bjarki Ármannsson skrifar
Svo virðist sem hringar Leoncie hafi dottið af í upptökuveri RÚV.
Svo virðist sem hringar Leoncie hafi dottið af í upptökuveri RÚV. Vísir/Aðsend/GVA
Annar tveggja gullhringa sem söngkonan Leoncie glataði í höfuðstöðvum RÚV í Efstaleiti er kominn í leitirnar. Þetta segir Leoncie í skilaboðum til Vísis en greint var frá hringahvarfinu í gær.

Leoncie sagði í Facebook-stöðufærslu sinni að hringunum hefði verið stolið á meðan hún var við tökur á nýju jólalagi sínu. Nú virðist hinsvegar sem hringarnir hafi einfaldlega dottið af í upptökuverinu. Leoncie segist ekki hafa hugmynd um hvernig það skeði en mögulega hafi það gerst eftir upptökur þegar hún var að taka í hendur aðdáenda sinna.

Hins hringsins er enn saknað, en þeir voru gjöf frá föður Leoncie.

Uppfært 22. nóvember: Báðir hringarnir eru komnir í leitirnar. Leoncie þakkar starfsfólki RÚV fyrir hjálpina.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×