Lífið

Amy Schumer fékk draum sinn uppfylltan og komst í kossamyndavélina

Stefán Árni Pálsson skrifar
Schumer var með góðu gengi á leiknum.
Schumer var með góðu gengi á leiknum. vísir
Leikkonan Amy Schumer var mætt á leik með New York Mets á dögunum og virtist skemmta sér mjög vel.

Hún fékk loks draum sinn uppfylltan þegar kossamyndavélinni var beint að henni kærastanum hennar Ben Hanisch. Þegar fólk lendir í því að fá myndavélina á sig í stúkunni verður það að kyssast, það er óskráð regla.

Schumer var ekkert að tvínóna við hlutina og gaf föður sínum Gordon Schumer koss og snéri sér því næst að Hanisch og gaf honum rembingskoss við mikil fagnaðarlæti á vellinum.

Hún greinir sjálf frá þessu á Instagram-síðunni sinni. Þar segir hún: „Ég hef alltaf viljað vera í kossamyndavélinni!“

Schumer sat einnig með þeim Jerry Seinfeild, Jessica Seinfeild, Matthew Broderick, og Jonah Hill í stúkunni og skemmtu þau sér vel.

I have always wanted to be on the kiss cam! My dad and my man!! #letsgomets

A video posted by @amyschumer on

Let's go @mets thank you jerry and @jessseinfeld #dreamday

A photo posted by @amyschumer on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×