Glamour

Amal og Kendall báðar í Versace á Cannes

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Augu tískupressunnar er á Cannes hátíðinni þessa dagana þar sem óhætt er að fullyrða að glamúrinn er allsráðandi. 

Rauða dreglinum er rúllað út á hverju kvöldi og í gær þá unnu þær Kendall Jenner og Amal Clooney dregilinn með óaðfinnanlegu fatavali við mismunandi tilefni. Báðar voru þær í kjólnum frá tískuhúsinum Versace en ólíkir voru þeir eins og myndirnar glöggt sýna. 

Sumarlegir og fagrir kjólar sem þær bera vel við klassíska förðun og hár. 






×