Lífið

Amabadama spilar lög Stuðmanna

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin Amabadama kemur fram ásamt Stuðmanninum Jakobi Frímanni Magnússyni á Innipúkanum. Þau ætla jafnframt að semja nýtt lag saman sérstaklega fyrir hátíðina.
Hljómsveitin Amabadama kemur fram ásamt Stuðmanninum Jakobi Frímanni Magnússyni á Innipúkanum. Þau ætla jafnframt að semja nýtt lag saman sérstaklega fyrir hátíðina. vísir/andri marinó
Hljómsveitin Amabadama og Jakob Frímann Magnússon sameinast á sviði á Innipúkanum í ár og verða með tónleikaprógramm sem gert er sérstaklega fyrir hátíðina með efni frá litríkum ferli Jakobs og smellum Amabadama.

„Þetta verður mjög skemmtilegt, ég er svakalega mikill Stuðmanna aðdáandi, á plöturnar og kann myndirnar utan að,“ segir Salka Sól Eyfeld önnur af söngkonum Amabadama.

Hljómsveitin hennar sló eftirminnilega í gegn þegar hún lék í fyrsta sinn á Innipúkanum í fyrra og hefur verið ein vinsælasta hljómsveit landsins undanfarið. Jakob Frímann er einnig fullur tilhlökkunar fyrir samstarfinu. „Amabadama hefur verið í miklu uppáhaldi hjá mér frá

því ég heyrði fyrst í sveitinni. Ég hlakka mikið til,“ segir Jakob.

Þau ætla þó ekki eingöngu að troða upp saman á tónleikunum og leika lög hvers annars, því einnig ætla þau að semja nýtt lag saman sérstaklega fyrir hátíðina.

Jakob á að baki áratuga langan feril sem tónlistarmaður, tónskáld og kvikmyndagerðarmaður. Hann hefur gefið út tónlist sína hérlendis sem erlendis undir nöfnunum JFM, Jobbi Maggadon og Jack Magnet, og á að baki gríðarmargar skífur með Stuðmönnum, auk verka Strax, Röggu & The Jack Magic Orchestra og fleiri sveita.

Vænta má að þekkt lög sem Jakob hefur samið, eins og einhverjir Stuðmannaslagarar verði komnir í reggíbúning á tónleikunum.

Tónlistarhátíðin Innipúkinn verður haldin um verslunarmannhelgina, eins og hefð er fyrir. Aðaltónleikadagskráin fer fram á tónleikastöðunum Húrra og Gauknum. Þar verður boðið upp á fjölbreytta tónleikadagskrá föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. Auk þess verður boðið upp á götuhátíðarstemningu í Naustinni, götunni fyrir framan staðina, yfir daginn.

Leyfi hefur fengist frá Reykjavíkurborg til að loka götunni þar sem boðið verður upp á enn meiri tónlist, veitingar, markað og almennt fjör.

Aðrir listamenn og hljómsveitir sem staðfest hafa þátttöku í Innipúkanum í ár eru Mammút, Maus, Sóley, Ylja, Kimono, Sin Fang, Muck, Steed Lord, Samúel Jón Samúelsson Big Band, Babies og indí-hetjurnar í Sudden Weather Change sem snúa aftur á svið eftir nokkurra ára hlé. Fleiri listamenn og hljómsveitir verða kynntar til leiks á næstu dögum og vikum, en ætla má að sameiginlegur fjöldi þeirra verði um 25.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×