Innlent

Alþingiskosningar í október

Bjarki Ármannsson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa
Frá fyrri fundi Sigurðar Inga með stjórnarandstöðunni.
Frá fyrri fundi Sigurðar Inga með stjórnarandstöðunni. vísir/ernir
Kosið verður til Alþingis í seinni hluta október. Þetta kom fram á fundi Sigurðar Inga Jóhannssonar forsætisráðherra og Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra með forsvarsmönnum stjórnarandstöðuflokkanna í Stjórnarráðinu í dag.

Árni Páll Árnason, sem sat fundinn fyrir hönd Samfylkingunnar, staðfesti í samtali við Vísi að þetta hefði orðið niðurstaða fundarins. Þá hefði verið farið yfir málaskrá ríkisstjórnarinnar á fundinum en þar er að finna þau mál sem ríkisstjórnin leggur upp með að takist að ljúka áður en gengið verði til kosninga.

„Þarna eru náttúrulega þjóðþrifamál sem það hefur aldrei staðið á okkur að afgreiða, eins og húsnæðismálin þar sem ágreiningurinn hefur fyrst og fremst verið á milli stjórnarflokkanna,“ segir Árni Páll. „Svo eru þarna einstaka mál sem eru ekki komin fram þannig að við vitum ekki hvað í þeim er.“

Þá sagði Árni Páll að lýðræðisleg skylda fælist í því að upplýsa almenning um hvenær kosningarnar færu fram. Ljóst væri að dagskrá Alþingis myndi riðlast eitthvað vegna kosninganna. Hann hefði sjálfur kosið að kosningar hefðu farið fram í vor en haust.

„Ég lagði sömuleiðis áherslu á það viðhorf að ef fjárlög yrðu lögð fram í haust þá væri mjög mikilvægt að það væru ekki kosningafjárlög einstakra flokka í aðdraganda kosninga,“ segir hann. „Við eigum ekki að misnota ríkisvaldið til að búa til kosningastefnu fyrir einstaka stjórnmálaflokka. Ef fjárlögð verða lögð fram í haust, yrðu þau bara um það sem er svona almenn samstaða um.“

Hvorki náðist í Bjarna Benediktsson né Sigurð Inga við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×