Tónlist

Allt undir hjá Alexander Jarli

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tónlistarmaðurinn Alexander Jarl hefur gefið frá sér nýtt myndbandið við lagið Allt undir. Í tilefni af því mun RVK Events halda sérstakt útgáfupartý vegna útkomu smáskífu Alexanders, en á henni eru þrjú ný lög.

Myndbandið er hið glæsilegasta og var það Hlynur Hólm sem leikstýrði því. Fjörið hefst klukkan tíu í kvöld og fer það fram á skemmtistaðnum Húrra.

Hér að neðan má sjá myndbandið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×