Íslenski boltinn

Allt Suðurlandið styður okkur

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Fyrirliðar liðanna með bikarinn. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir hjá Stjörnunni og Guðmunda Brynja Óladóttir hjá Selfossi.
Fyrirliðar liðanna með bikarinn. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir hjá Stjörnunni og Guðmunda Brynja Óladóttir hjá Selfossi. Vísir/Vilhelm
Selfoss keppir í dag í fyrsta sinn í bikarúrslitum í tæplega 70 ára sögu félagsins þegar liðið mætir ríkjandi Íslandsmeisturum í Stjörnunni á Laugardalsvelli. Það má búast við mikilli spennu og skemmtun á vellinum en í fyrri leik liðanna komu átta mörk. Þrjátíu ár eru síðan kvennalið Selfoss vann Stjörnuna síðast í keppnisleik en taka verður fram að liðin léku ekki leik sín á milli á 26 ára tímabili.

Pressa á Garðbæingum

Stjarnan er að keppa í fjórða sinn í sögu félagsins í bikarúrslitum. Fyrstu tvær tilraunirnar enduðu í svekkelsi með 1-3 tapi fyrir ÍA árið 1993 og 0-1 tapi fyrir Val 2010. Þær náðu síðan að hefna fyrir síðara tapið og tryggja sér fyrsta bikarmeistaratitillinn árið 2012 með 1-0 sigri á Val.

Staða liðanna er heldur ólík, Selfoss siglir lygnan sjó um miðja deild á meðan Stjarnan stefnir hraðbyri á þriðja Íslandsmeistaratitilinn á fjórum árum.

Lykilleikmaður Stjörnunnar sem Selfyssingar einfaldlega verða að stöðva í dag er Harpa Þorsteinsdóttir. Harpa hefur farið á kostum á tímabilinu en hún er langmarkahæst í Pepsi-deildinni með 23 mörk í 13 leikjum, þar á meðal fjögur í leik liðanna á Selfossi.

Lærum vonandi af síðasta leik

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, segir að leikmenn liðsins megi ekki vanmeta Selfoss og á von á hörkuleik.

„Stemmingin í hópnum er gríðarlega góð, við erum virkilega vel stemmdar og það verður gaman að setja deildina til hliðar og fá að spila bikarúrslitaleik. Við höfum verið að spila gríðarlega vel en við lentum í vandræðum í síðasta leik og það verður vonandi vakningin sem við þurftum,“ sagði Ásgerður sem vonast til þess að þær hafi lært af jafnteflinu gegn Val.

„Ég held að þetta hafi komið á réttum tíma og vonandi lærum við af þessu og komum tilbúnar í leikinn á laugardaginn.“

Þetta eru miklir naglar

Ágústa á von á mikilli hörku á vellinum líkt og í fyrri leik liðanna í sumar. „Það er mikil stemming í liðinu þeirra og það skiptir ekki endilega máli að þetta sé fyrsta skiptið þeirra í bikarúrslitum. Þær eru alltaf vel stemmdar og skipulagðar. Fyrri leikurinn fór fram í frábærum aðstæðum á Selfossi, hellidembu og þar var hart barist. Þetta eru miklir naglar og við þurfum að mæta af sömu hörku. Inn á milli eru þær með leikna leikmenn sem við þurfum að hafa gætur á,“ sagði Ásgerður. Selfoss keppir í fyrsta sinn í sögu félagsins í úrslitum bikarsins en á leið sinni í úrslitin hefur Selfoss slegið út þrjú Pepsi-deildarlið.

„Við erum búnar að mæta sterkum liðum og þetta er búið að vera skemmtilegt hingað til. Við eigum fyllilega skilið að vera í úrslitunum og við förum í þennan leik til þess að njóta hans, hafa gaman og sjá hverju það skilar okkur.“

Guðmunda veit að verkefnið verður erfitt á Laugardalsvellinum í dag eftir fyrri leik liðanna.

„Þetta verður erfiður leikur, það er á hreinu en þær sýndu það í síðasta leik að það eru veikleikar. Það eru að mínu mati helmingslíkur á því hver sigrar í dag. Fyrri leikur liðanna var mun jafnari en lokastaðan gefur til kynna. Það skiptir máli hvoru liðinu tekst betur að ráða við spennustigið í leiknum.“

Búist er við að nýtt aðsóknarmet verði sett á leiknum en von er á gríðarlegum fjölda af stuðningsmönnum Selfoss. Sérstakar rútuferðir ferja stuðningsmenn liðsins á Laugardalsvöll í dag.

Rútuferðir að sunnan

„Stemmingin er bara mjög góð, bærinn og eiginlega bara allt Suðurlandið bíður eftir því að koma á Laugardalsvöll og styðja okkur. Það er gaman að brjóta blað í sögu félagsins með því að komast í úrslit og að gera það með margar uppaldar stúlkur. Það gerir þetta sérstakara og það styðja allir í nágrenninu við liðið. Það verða rútuferðir frá Selfossi og það mun vonandi hjálpa okkur að fá tólfta manninn með okkur í lið,“ sagði Guðmunda.

Þess má geta að leikurinn verður í beinni í opinni dagskrá á  Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir

Von á markaleik í Dalnum á morgun? - átta mörk í fyrri leiknum

Stjarnan og Selfoss spila til úrslita í Borgunarbikar kvenna í fótbolta á morgun en Stjörnukonur hafa verið að gera sig líklegar til að vinna tvöfalt í kvennafótboltanum í sumar. Þær mæt nú ungu liði Selfoss sem er í sínum fyrsta bikarúrslitaleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×