Innlent

Allt á floti á Snæfellsnesi

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Pjetur
Mikið vatn er nú í ám og lækjum á Snæfellsnesi eins og sést á þessum myndböndum sem Þröstur Albertsson ljósmyndari tók í morgun.

Gífurleg úrkoma hefur verið á Snæfellsnesi í nótt og í morgun og samkvæmt mælingum Veðurstofu Íslands hefur úrkoman í Grundarfirði verið 79,9 mm.

Þá hefur einnig verið ófært á milli byggðarlaga á norðanverðu Snæfellsnesi vegna sterkra vinda.

Vegagerðin hefur sett 10 tonna þungatakmarkanir á alla vegi á Snæfellsnesi vegna aurbleytu og/eða hættu á slitlagsskemmdum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×