Bílar

Alfa Romeo boðar 8 nýjar bílgerðir til 2018

Finnur Thorlacius skrifar
Alfa Romeo 4C af árgerð 2015.
Alfa Romeo 4C af árgerð 2015.
Á bílasýningunni í Los Angeles sem enn stendur yfir var haft eftir forsvarsmönnum Alfa Romeo að fyrirtækið ætli að kynna eina 8 nýja bíla fram til ársins 2018. Alla þessa bíla ætlar Alfa Romeo að smíða á Ítalíu og verða þeir annaðhvort afturhjóla- eða fjórhjóladrifnir, í anda Alfa Romeo sem sportbílamerkis.

Fyrsti bíllinn verður kynntur í Mílanó í júní á næsta ári og verður það á 105 ára afmæli Alfa Romeo. Sá bíll verður í miðstærðarflokki fólksbíla en mun líklega ekki fá gamalkunna nafnið Giulia, heldur nýtt nafn. Í leiðinni ætlar Alfa Romeo að opna enduruppgert safn fyrir Alfa Romeo bíla.

Þessir 8 nýju bílar verða fólksbílar, jepplingar og líklega einnig blæjubílar. Alfa Romeo hefur 800 milljarða króna að vinna með til þróunar á þessum bílum og hefur eigandi Alfa Romeo, Fiat, séð til þess að það fjármagn er til staðar.

Vegna þessara nýju bíla þarf Alfa Romeo að fjölga hjá sér í liði verkfræðinga úr 600 manns í 1.000 og verður það strax komið til framkvæmda á næsta ári. Sumir þeirra munu reyndar koma frá systurfyrirtækjunum Ferrari og Maserati, sem einnig eru í eigu Fiat.

Það er því margt í pípunum hjá Alfa Romeo og Fiat hefur upp stórar áætlanir með Alfa Romeo merkið. Það á að keppa af krafti við aðra lúxusbílaframleiðendur heimsins á næstu árum, ekki síst þá þýsku.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×