Innlent

Aldrei fleiri pakkar undir jólatré Kringlunnar

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Ungur drengur setur pakka undir jólatré Kringlunnar.
Ungur drengur setur pakka undir jólatré Kringlunnar.
Aldrei hafa fleiri pakkar safnast undir jólatréð í Kringlunni en verslunarmiðstöðin hefur undanfarna daga staðið fyrir pakkasöfnun fyrir jólin í samstarfi við Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands.

Að sögn Baldvinu Snælaugsdóttur, markaðsstjóra Kringlunnar, spilar leikurinn Kringlujól stórt hlutverk í pakkasöfnuninni, en allir þeir sem spila leikinn í snjallsímum sínum hjálpast að við að safna raunverulegum gjöfum sem fyrirtæki í Kringlunni síðan gefa. 

„Fólk getur nú spilað endalaust með góðri samvisku en því meira sem það spilar og lengra sem það kemst í leiknum þá fjölgar pökkunum undir trénu. Fólk er því að spila til góðs, fyrir utan það hvað það er skemmtilegt,“ segir Baldvina.

Söngvararnir Stefán Hilmarsson, Gissur Páll Gissurarson og Eyþór Ingi kepptu við söngkonurnar Brynhildi Oddsdóttur, Ragnheiði Gröndal og Jóhönnu Guðrúnu í snjallsímaleiknum Kringlujól. Stelpurnar fóru með sigur af hómi eftir spennandi viðureign við strákanna.
Hún segir að margir einstaklingar hafi sett pakka undir jólatréð. Þá hafi hafi skólabörn fjölmennt og jafnvel heilu skólabekkirnir komið með pakka. Sem dæmi megi nefna að allir tíundu bekkingar í Sæmundarskóla í Grafarvogi hafi komið með gjafir undir jólatréð í stað þess að skiptast á gjöfum eins og venjan hefur verið í skólanum.

Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands sjá um að útdeila pökkunum sem munu vafalaust gleðja marga á aðfangadagskvöld.

Fólk getur sótt sér leikinn Kringlujól í App Store og Google Play því að kostnaðarlausu.


Tengdar fréttir

Stelpurnar burstuðu strákana

Skorað var á þekkta söngvara og söngkonur til að keppa í leiknum Kringlujól sem gengur út á pakkasöfnun Kringlunnar í samstarfi við Mæðrastyrksnefnd og Fjölskylduhjálp Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×