Tónlist

Aldrei að vita hvað gerist á sviðinu

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
„Þetta verður að mestu leyti nýtt efni af sólóplötu sem ég er að vinna,“ segir Sigurlaug Gísladóttir, öðru nafni Mr. Silla, um dagskrá tónleikanna sem hún heldur í Mengi í kvöld. „Ég hef aldrei spilað þessi lög fyrir áhorfendur áður og hlakka mikið til.“



Mr. Silla er nafnið sem Silla notar þegar hún kemur fram ein en hún segir það ekki hafa neina karllæga merkingu. „Þetta er bara gælunafn sem vinur minn byrjaði að kalla mig fyrir fyrir mörgum árum og það festist við mig þannig að ég ákvað að nota það sem listamannsnafn.“



Auk sólóferilsins kemur Silla fram með múm, Snorra Helgasyni, Mice Parade og Low Roar þannig að hún hefur nóg að gera í tónlistinni. Reyndar er hún líka útskrifaður myndlistarmaður úr LHÍ og hefur unnið töluvert við myndlist, en segir tónlistina hafa orðið ofan á. „Stundum samræmi ég nú tónlistina og myndlistina, þetta skiptist töluvert á.“



Myndlistarkonan skín í gegn í búningum Sillu á sviði, sem hún segist hafa lagt mikið upp úr í gegnum tíðina, en hún sé reyndar ekki enn búin að ákveða í hverju hún ætli að vera í kvöld, það sé minna atriði en áður. „Ég er svona aðeins að þreifa fyrir mér að spila þetta „læf“ í kvöld, en það er aldrei að vita hvað gerist á sviðinu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×