Tónlist

Albarn og Gallagher orðnir góðir vinir

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Albarn (t.v.) og Gallagher á góðri stundu.
Albarn (t.v.) og Gallagher á góðri stundu.
Britpoppararnir Damon Albarn úr Blur og Noel Gallagher úr Oasis eru orðnir mestu mátar að sögn Alex James, bassaleikara Blur. Þetta er annað hljóð í strokknum en var á tíunda áratugnum, þegar hljómsveitirnar skiptust á að hrauna hvor yfir aðra á síðum breskra tónlistartímarita.

„Ég hugsa að við höfum áttað okkur á því að við erum allir á sömu blaðsíðu,“ segir James, en frægt er orðið þegar Noel Gallagher sagðist vona að James og Albarn „fengju eyðni og dræpust“ í viðtali við The Observer árið 1995.

Þá gáfu sveitirnar út smáskífur sama dag þann 14. ágúst sama ár, en það voru lögin Country House með Blur og Roll With It með Oasis. Breska pressan sló útgáfunum upp á forsíðum sem einvígi milli sveitanna og það var Blur sem „sigraði“ í slagnum, en lag þeirra hafnaði í fyrsta sæti breska smáskífulistans á meðan Oasis þurftu að sætta sig við annað sætið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×