Lífið

Albanska Madonna fáklædd á verðlaunahátíð

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/getty
Tónlistarkonan Bleona Qereti mætti heldur betur fáklædd á American Music-verðlaunahátíðina sem fór fram í Nokia Theatre í Los Angeles í gærkvöldi.

Bleona er stjarnan í raunveruleikaþættinum Euros of Hollywood sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni Bravo. Í honum er fylgst með tilraunum Bleonu til að hasla sér völl í Bandaríkjunum en hún er oft kölluð hin albanska Madonna.

Bleona flutti til Bandaríkjanna árið 2009 og hefur unnið með upptökustjórum á borð við Timbaland, Rodney Jerkins og David Foster. Hún hefur gefið út fjórar smáskífur, Show Off, Without You, Pass Out og Take It Like A Man.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×