Lífið

Ákveður háralitinn með litahjóli

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Ke$ha er komin með ljósblátt hár en hún ákveður háralitinn hverju sinni með áhugaverðum leiðum.

„Hárlitunarpartí. Hvaða litur verður það á morgun?????“ skrifar söngkonan á Instagram-síðu sína með mynd af sérstöku hárlitunarhjóli.

Tónlistarkonan hefur ekki átt sjö dagana sæla undanfarið en hún fór í meðferð 3. janúar vegna þess að hún þjáist af átröskun. Núna er hún hins vegar á batavegi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×