Bílar

Aka hringinn á smábíl

Finnur Thorlacius skrifar
Opel Adam Rocks á söndum Suðurlands.
Opel Adam Rocks á söndum Suðurlands.
Tveir Þjóðverjar, annarsvegar blaðamaður frá bílatímaritinu Auto Motor & Sport og hinsvegar starfsmaður Opel eru nú að aka hringinn í kringum Ísland á afar smáum bíl frá Opel sem heitir Adam Rocks.

För þeirra hófst á laugardaginn og ætla þeir 5 daga til ferðarinnar. Þeir eru vel búnir þó bíll þeirra sé smár því meðferðis eru keðjur, tóg og skóflur og undir bílnum eru góð negld Nokian Hakkapellitta vetrardekk.

Á fyrst degi gerðu þeir tilraun til að aka að flugvélaflakinu á Sólheimasandi en urðu frá að hverfa og þurftu reyndar aðstoð hjálpsamra Íslendinga sem drógu þá úr heilmiklum snjó á sandinum. Urðu þeir hjálpsömu hissa á því hversu langt þeir reyndar komust á þessum framhjóladrifna smábíl í átt að flakinu.

Gott var fyrir leiðangursmenn að vita af góðum negldum dekkjunum í mikilli hálku austan Víkur og endaði dagsferð þeirra við Fosshótel á Núpum í miðju eystra Eldhrauns.

Ferð þessi er farin í því augnamiði að skrifa 6 síðna grein í Auto Motor & Sport og því verður vegleg Íslandskynning brátt í blaðinu vinsæla. Auto Motor & Sport er leiðandi tímarit í Þýskalandi í umfjöllun um bíla og rekur sögu sína til ársins 1946. Tímaritið kemur út í 500.000 eintökum hverju sinni.

Opel Adam Rocks bíllinn við Skógarfoss.
Íslenski hesturinn skoðaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×