Tónlist

Airwaves á NASA í ár

Adda Soffia Ingvarsdottir skrifar
Hljómsveitin HAM gerir allt vitlaust á Airwaves á NASA 2010.
Hljómsveitin HAM gerir allt vitlaust á Airwaves á NASA 2010. Visir/Arnþor Birkisson
Aðdáendur Airwaves-hátíðarinnar hafa svo sannarlega ástæðu til þess að fagna, en staðfest hefur verið að hátíðin verður haldin á skemmtistaðnum Nasa að nýju í ár.

„Um leið og við heyrðum að það ætti að opna staðinn að nýju, þá fórum við á stúfana og tryggðum okkur staðinn á Airwaves,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Iceland Airwaves.

Hátíðin hefur ekki verið haldin á skemmtistaðnum Nasa í fjögur ár. „Þetta var alltaf einn af okkar uppáhaldsstöðum og það var hálf blóðugt að missa hann á sínum tíma. Nasa spilaði mikilvægt hlutverk á Airwaves, var ekki of lítill og ekki of stór.“

Grímur býst við að staðurinn verði notaður öll kvöldin, enda skipti miklu máli að geta dreift hátíðargestum og haft staði sem henta sem flestum tónleikum.

„Þetta var akkúrat kryddið sem okkur vantaði aftur. Þetta tekur álag af litlu stöðunum og tekur giggin sem passa ekki í Hörpu. Heiðurinn verður allur þess sem fær að opna Airwaves á Nasa.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×