Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Nautið: Ný tækifæri og mikil spenna

Sigga Kling skrifar
Elsku, spennandi Naut. Það að gefast upp er ekki til í þér og orðin finnast ekki í orðaforða þínum.

Þú hefur svo frábæra hæfileika til að laga þig að aðstæðum en ég er ekki viss um að þú áttir þig alveg á því. Þegar á reynir ertu kamelljón, þér gengur best þegar mikið er að gera og besta útkoman hjá þér er þegar stressið er mest.

Þú verður að passa þig að festast ekki í viðjum vanans því það er drepleiðinlegt. Sú hugsun að allt þurfi að vera öruggt í kringum þig getur lamað framkvæmdaorkuna þína. Þú ert svo dásamlega ástríðufullt og getur vafið heiminum um fingur þér svo ekki sætta þig við það næstbesta.

Þú hefur gengið í gegnum margt og lífsreynsla þín er mikil. Það mun móta næstu mánuði hjá þér. Þú átt eftir að grípa ný tækifæri og læra hvernig líf þitt getur orðið svo miklu betra. En þú þarft að næra þig andlega og gera þig reiðubúið í að henda þér í djúpu laugina. Hafðu hugfast að hik er sama og tap og þú átt eftir að elska spennuna sem verður í kringum þig á næstunni. Þú verður næmari með hverjum deginum og óskir þínar rætast ein af annarri.

Mottó: veröldin er sköpuð til að hafa gaman af

Frægir í Nautinu: Svali Kaldalóns fjölmiðlamógúll, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, rithöfundur og latikokkur, Ellý Ármanns fjölmiðlakona, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri, Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður, Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Álfheiður Ingadóttir þingkona, Halldór Laxness rithöfundur og skáld, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Garðar Thor Cortes söngvari, Helga Möller söngkona, Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfitmeistari, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona. 


Tengdar fréttir

Ágústspá Siggu Kling – Fiskur: Daðraðu við lífið

Dásamlegi Fiskur. Það sem einkennir þig mest þessa dagana er að þú ferð bara þínar eigin leiðir. Það kemur þó fyrir að þér finnist þú vera svo hjálparlaus að þú gætir alveg misst máttinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×