Lífið

Ágústspá Siggu Kling – Fiskur: Daðraðu við lífið

Sigga Kling skrifar
Dásamlegi Fiskur. Það sem einkennir þig mest þessa dagana er að þú ferð bara þínar eigin leiðir. Það kemur þó fyrir að þér finnist þú vera svo hjálparlaus að þú gætir alveg misst máttinn.

Þú ert með svo öfluga hugsun!  Þetta tímabil varir bara í stutta stund því það er svo skemmtilegt hjá þér fram undan. Það er svo magnað hvað þú verður orðheppinn og þú munt meira að segja koma sjálfum þér á óvart með það!

Mátturinn býr nefnilega í orðunum sem þú segir og þú átt eftir að tala fólk til, það á eftir að sannfærast um að það sem þú vilt sé í raun hið rétta. Þess vegna þarftu að hafa alveg á hreinu hvað það er sem þú vilt raunverulega.

Næsti mánuður verður hlýr og notalegur og það er eins og þú getir hlustað á friðinn. Þú átt eftir að vilja skipuleggja hluti, kannski aðeins um of, og verður viðskotaillur ef fólk skilur ekki hvað þú ert að meina. Segðu allt skýrt og skilmerkilega því að þá gengur dæmið upp.

Þú ert búinn að vera svo duglegur, hjartað mitt, en þú átt það til að ofkeyra þig og þess vegna vilja allir hafa þig í vinnu. Það er bara svoleiðis. Þú logar líka af sexappíl svo margir eru að gefa þér auga. Nýttu þér þessa orku og daðraðu við lífið, með blikandi brosi!

Mottó: Ég horfi til himins og ber höfuðið hátt.

Frægir Fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Diana Omel listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×