Lífið

Ágústa á æskuslóðir

Ágústa og kærastinn hennar Jón Viðar Arnþórsson.
Ágústa og kærastinn hennar Jón Viðar Arnþórsson. Visir/stefán
Í nógu er að snúast hjá leikkonunni Ágústu Evu Erlendsdóttur þessa dagana. Í þessum mánuði var leikrit um ólátabelginn Línu Langsokk frumsýnt í Borgarleikhúsinu með Ágústu Evu í aðalhlutverki.

Kvikmyndin Borgríki II verður svo frumsýnd í næsta mánuði en þar fer Ágústa Eva með stórt hlutverk. Fyrr í sumar keypti Ágústa Eva ásamt kærasta sínum, Jóni Viðari Arnþórssyni , formanni Mjölnis, æskuheimili hennar í Hveragerði en síðasti íbúi hússins var athafnamaðurinn Fjölnir Þorgeirsson

Ágústa Eva leikur ólátabelginn Línu Langsokk.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×