Innlent

Aftanákeyrsla á Seltjarnarnesi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Frá vettvangi um stundarfjórðungi eftir að áreksturinn varð.
Frá vettvangi um stundarfjórðungi eftir að áreksturinn varð. Vísir/Vilhelm
Aftanákeyrsla varð á Norðurströnd á Seltjarnarnesi um klukkan 10:20 í morgun. Fólksbíl var ekið aftan á steypubíl og varð fólksbíllinn fyrir töluverðum skemmdum líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd.

Tveir sjúkrabílar auk lögreglubíls voru sendir á svæðið og var ökumaður fólksbílsins fluttur á slysadeild. Hann er þó ekki talinn alvarlega slasaður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×