Innlent

Afbókunum fjölgar í aðdraganda verkfalls

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
VR og Landssamband íslenzkra verzlunarmanna fundu með félagi atvinnurekenda í morgun en ákveðið var að hittast aftur á morgun hjá Ríkissáttasemjara.
VR og Landssamband íslenzkra verzlunarmanna fundu með félagi atvinnurekenda í morgun en ákveðið var að hittast aftur á morgun hjá Ríkissáttasemjara.
Allt stefnir í að verkfallslota félagsmanna VR hefjist eftir viku og þá með tveggja daga verkfalli starfsmanna hjá hópbifreiðafyrirtækjum. Markaðsstjóri Hópbíla segir fyrirtækið þegar farið að finna fyrir áhrifum aðgerðanna. Í gær og í dag hafa hópar afbókað ferðir hjá fyrirtækinu.

Dagana 28. maí til 5. júní verða 5 tveggja daga verkföll félagsmanna VR sem hefjast með verkfalli hjá hópbifreiðafyrirtækjum.

Ljóst er að aðgerðirnar munu hafa töluverð áhrif á starfsemi þessara fyrirtækja og í raun finna þau nú þegar fyrir áhrifum þeirra.

„Við munum náttúrulega finna fyrir þessu á innanlandsmarkaði þar sem við erum með mikið af föstum verkefnum.“ Segir Jón Arnar Ingvarsson, markaðsstjóri Hópbíla. „Og ekki síst það sem snýr að útlendingunum. Þeir eru nú þegar byrjaði að afbóka ferðir fyrir þessa tvo daga. Það hefur verið að gerast í gær og í dag. Menn eru hættir að geta beðið.“

VR sleit viðræðum við Samtök atvinnulífsins á þriðjudaginn eftir fund deiluaðila hjá ríkissáttasemjara. Jón Arnar segir að eftir það hafi fyrirtækið látið kúnna sína vita í hvað stefndi.

„Við höfum reynt að bíða með það að ýta of mikið við þeim,“ segir Jón Arnar. „En núna verður þetta að gerast. Við erum að segja þeim hver staðan er, þó svo að allir voni að þetta fari að leysast. Í raun verður þetta að fara að leysast.

„Þetta mun skaða alla þá sem starfa í ferðaþjónustu til lengri tíma.“

31. maí hefst verkfall félagsmanna VR í flugafgreiðslu sem kemur til með að hafa verulega áhrif á flugsamgöngur.

Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW-air, segir að margir farþegar hafi hringt í þjónustuver og spurst fyrir um verkfallið en hún hefur ekki orðið vör við að bókanir hafi dregist saman í kringum þetta tímabil.

Fundur Starfsgreinasambandsins og Samtaka atvinnulífsins hófst hjá Ríkissáttasemjara í hádeginu. VR og Landssamband íslenzkra verzlunarmanna fundu með félagi atvinnurekenda í morgun en ákveðið var að hittast aftur á morgun hjá Ríkissáttasemjara. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×