Matur

Afar góð hnetusteik að hætti Alberts

Friðrika Geirsdóttir skrifar
Albert töfrar fram dýrindis hnetusteik með gómsætu meðlæti.
Albert töfrar fram dýrindis hnetusteik með gómsætu meðlæti.

Í öðrum þætti af Hátíðarstund með Rikku á Stöð 2 kom gleðigjafinn, matarbloggarinn og matreiðslubókahöfundurinn Albert Eiríksson í heimsókn.

Albert er mörgum kunnur fyrir gómsætar uppskriftir sínar. Fyrir nokkrum árum fór Albert að huga betur að heilsunni og breytti algerlega um lífstíll. Í kjölfarið breyttust matarvenjurna og þar á meðal jólamáltíðin sjálf.

Albert er búinn að útfæra hnetusteikina að sínum hætti og uppskriftina má finna hér fyrir neðan. Hátíðarstund með Rikku er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudagskvöldum.

Afar góð hnetusteik

1 laukur, saxaður smátt

1⁄2 rautt chili, fræhreinsað og saxað

góð olía til steikingar

1 askja sveppir, saxaðir smátt

200 g malaðar heslihnetur

200 g malaðar möndlur

ca. 7 sneiðar heilhveitibrauð (til að binda saman) u.þ.b. 200 ml



1 stk grænmetiskraftur

1 tsk oregano

1 tsk timían

nýmalaður pipar og salt

fersk basilíka



Steikið lauk og chili í svolítilli olíu, takið frá. Steikið niðursneidda sveppi í olíu, takið frá. Malið heslihnetur og möndlur (hnetublandan má vera eftir smekk, en notið þó minna af feitum hnetum, eins og kasjú eða valhnetum).

Setjið hnetublönduna í skál, bætið lauk og sveppum út í, hrærið saman.

Soði er bætt út í smám saman til skiptis við smátt rifið brauðið. Deigið á að vera eins og nokkuð þétt brauðdeig (ekki hægt að hella). Ef það er of blautt, þarf að bæta brauði út í og ef það er of þurrt, þarf að bæta soði út í.

Smakkið deigið til með pipar og þurrkuðu oregano (eða einhverju grænu). Það fer eftir kraftinum sem notaður er, hvort þarf meira salt, en líklega þarf að salta eitthvað.

Setjið þrjú basilikum lauf, rósmaríngrein eða annað skraut í botninn á sílikon brauðformi og látið deigið þar ofan á, ekki of þykkt lag (hafið þá frekar fleiri form). Ef formið er ekki úr sílikoni, er best að nota bökunarpappír.

Setjið í ofn 45-60 mínútur, fylgist með, hiti 180-200°.



Ofnbakað meðlæti (fylling)

1 laukur, saxaður

1 sellerístilkur, saxaður

1⁄2 askja sveppir, saxaður

ca. 1 tsk Húnagull frá Prima

ca. 3 seiðar af heilhveitibrauði

u.þ.b. bolli af góðum grænmetiskrafti

1 b pekanhnetur (eða valhnetur), ristaðar á pönnu og saxaðar gróft

1 grænt epli, afhýtt, fræhreinsað og saxað

salt og pipar

smá hunang



Steikið lauk, sellerí og sveppi í smá olíu þannig að brúnist, en soðni ekki.

Setjið brauð og grænmetiskraft í pott, brauðið rifið smám saman og allt hrært vel saman, ekki of blautt, en samt aðeins blautara en hnetusteikin.

Þá er ristuðum hnetum ásamt eplum, salti, pipar og hunangi bætt út í. Hrærið saman og smakkið til.

Setjið í eldfast form, þjappið vel og bakið með loki eða álpappír yfir í sirka 50 mín við 150-200 °C. Lokið tekið af síðustu 20 mínúturnar.



Sveppasósa með hnetusteik

300 g niðursneiddir sveppir

2 bollar grænmeti, t.d.gulrætur, sellerí, lauk, 5 msk góð olía

2 hvítlauksrif, söxuð

2-3 msk villisveppir, saxaðir

1 tsk estragon

1 tsk timian

grænmetiskraftur

salt og pipar

1/2 bolli kókosmjólk

2-3 msk sérrý

sósulitur ef þarf



Steikið sveppi á pönnu í olíu, bætið við grænmetinu og villisveppunum. Kryddið. bætið við kókosmjólk og sérrýi og sjóðið í um 10 mín.

Maukið í blandara eða með töfrasprota. Þykktin á sósunni ákvarðast af magni kókosmjólkurinnar, þannig að nauðsynlegt er að fylgjast vel með þegar hún er sett út í.



Sykurbrúnaðar kartöflur

Við sem erum alin upp við að sjá mæður okkar brúna fumlaust og af miklu öryggi, kartöflur með sunnudagssteikinni og jólasteikinni höldum sum að það sé mikill vandi að brúna blessuð jarðeplin. Að vísu er það vandi en það er eins með þetta eins og svo margt annað: Æfingin skapar meistarann. Áður en kartöflurnar fara saman við brædda sykurinn verður að stöðva brunann, það er gert með vökva, best finnst mér að nota rjóma eða kaffi.

1 kg soðnar kartöflur

2/3 bolli sykur

1/3 bolli púðursykur

2 msk smjör

1/2 tsk salt

100 ml rjómi eða sterkt kaffi

Setjið sykur, púðursykur, smjör og salt á pönnu. Brúnið sykurinn og hellið rjómanum (eða kaffinu) út á þegar sykurinn er orðinn fallega brúnn, passið að hann brenni ekki. Hrærið stöðugt í en varlega. Hrærið í þangað til sykurinn hefur samlagast vökvanum, slökkvið undir og látið kartöflurnar varlega saman við (ekki láta kartöflurnar of snemma saman við). Veltið þeim í sykurleginum í nokkrar mínútur.



Soðið rauðkál

Það er auðvelt að tengja lykt við tímabil í lífi okkar, t.d. frá barnæsku minni man ég vel ilminn þegar verið var að sjóða niður rauðrófur og rauðkál til jólanna – dásamlegt. Síðan bættist við lyktin af hangikjötinu á Þorláksmessu sem blandaðist Ajax lyktinni á meðan Gerður G, Ragnheiður Ásta, Jóhannes, Pétur, Jón Múli og fleiri lásu hugheilar jólakveðjur (að sjálfsögðu var útvarpið í botni).

1 höfuð rauðkál, saxað

1 msk anís

1 stöng kanill (eða 1 msk kanill)

1 grænt epli, saxað

100 ml edik

1/2 bolli rauðvín

1/2 bolli krækiberjasaft

100 ml vatn

smá salt

1 msk hunang

Setjið allt í pott og sjóðið í um klst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×