Lífið

Ætlar að fá sér kaffi með öllum Facebook-vinum sínum

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Kaffibolli nr. 19: Becky Sui Zhen - vinir á Facebook síðan í maí árið 2013.
Kaffibolli nr. 19: Becky Sui Zhen - vinir á Facebook síðan í maí árið 2013.
Á hverjum degi fyllast fréttaveitur fólks á Facebook af stöðuuppfærslum, myndum og tenglum frá fólki sem maður kannast ekkert sérstaklega við.

Sama var uppi á teningnum hjá Ástralanum Matt Kuleza. Í staðinn fyrir að eyða þeim „vinum“ út af Facebook sem hann þekkti ekki ákvað hann að kynnast þeim.

Matt ætlar að fá sér kaffibolla með hverjum einasta vini sínum á Facebook en verkefnið kallar hann 1000+ Coffees þar sem vinirnir eru rúmlega þúsund talsins.

Hægt er að fylgjast með ferðum Matts bæði á Tumblr og Facebook en hingað til hefur hann hitt vin úr háskóla, ókunnugan mann og fyrrverandi kærustu.

Kaffibolli nr. 25: Miles Brown - vinir á Facebook síðan í október árið 2007.
Kaffibolli nr. 14: Sally Humble - vinir á Facebook síðan í september árið 2011.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×