Fótbolti

Ætla að vinna alla titlana fimm

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bæjarar höfðu ríka ástæðu til að fagna á síðustu leiktíð.
Bæjarar höfðu ríka ástæðu til að fagna á síðustu leiktíð. Nordicphotos/Getty
Evrópumeistarar Bayern München trúa því að þeir geti landað öllum titlunum sem í boði eru á tímabilinu sem senn fer í hönd.

Matthias Sammer, yfirmaður knattspyrnumála hjá Bæjurum, segir í viðtali við Bild að þrefaldir meistarar frá því í fyrra vilji afreka eitthvað sem ekkert annað lið hafi gert.

„Við viljum landa þrennunni aftur og ofan á það Ofurbikar Evrópu og verða heimsmeistari félagsliða," segir Sammer.

Bæjarar urðu Þýskalandsmeistarar, þýskir bikarmeistarar og Evrópumeistarar á síðustu leiktíð undir stjórn Jupp Heynckes. Pep Guardiola, nýr þjálfari Bæjara, á því erfitt verkefni fyrir höndum að viðhalda árangrinum enda væntingarnir miklar.

Bæjarar biðu lægri hlut 4-2 gegn Borussia Dortmund í þýska ofurbikarnum um helgina. Bæjarar unnu svo 5-0 sigur gegn D-deildarliði BSC Rehden í þýska bikarnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×