Lífið

Ætla að framleiða kjólinn í hvítu og gylltu

Samúel Karl Ólason skrifar
Ian Johnson, einn yfirmanna Roman Originals fyrirtækisins, segir þá þegar framleiða kjólinn í öðrum litum en að hvítu og gylltu verði bætt við.
Ian Johnson, einn yfirmanna Roman Originals fyrirtækisins, segir þá þegar framleiða kjólinn í öðrum litum en að hvítu og gylltu verði bætt við.
Í ljós hefur komið að einn umræddasti kjóll seinni tíma sé blár og svartur, en ekki hvítur og gylltur eins og svo margir sjá hann. Reyndar hefur heyrst að sumir sjái hann sem grænan og jafnvel sjá einhverjir appelsínugula liti þarna, en leggjum það til hliðar.

Framleiðendur kjólsins, sem væntanlega eru hæstánægðir með umfjöllunina, hafa nú ákveðið að framleiða hann í hvítu og gylltu. Ian Johnson, einn yfirmanna Roman Originals fyrirtækisins, segir þá þegar framleiða kjólinn í öðrum litum en að hvítu og gylltu verði bætt við.

Þetta kemur fram á vef Independent.

Kjóllinn hefur þegar selst upp en fyrirtækið ætlar að framleiða minnst þrjú hundruð kjóla í öllum litum og þar á meðal hvítu og gylltu.


Tengdar fréttir

Kjóllinn er svartur og blár... eða hvað?

Söguna af umdeildasta kjól ársins má rekja til myndar sem mamma sendi dóttur sinni til að sýna henni kjólinn sem hún ætlaði að vera í við brúðkaup dótturinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×