Glamour

Adrien Brody stjarna jólaauglýsingar H&M

Ritstjórn skrifar
Skjáskot/HM
Það kemur manni yfirleitt í hátíðarskap að skoða jólaauglýsingar stórfyrirtækjanna en óhætt er að segja að sænski verslanarisinn Hennes&Mauritz eigi vinninginn í ár. 

Jólaauglýsingin er stuttmynd sem ber titilinn Come Together og er í leikstjórn Wes Anderson en það er sjálfur leikarinn Adrien Brody sem er í aðalhlutverki. 

Myndin gerist um borð í lest á jóladag sem seinkar vegna veðurs og þarf lestarstjórinn því að grípa til ráða til að halda upp á jólin með farþegum sem komast ekki heim yfir hátíðarnar. 

„Þessi saga á mjög vel við í dag í heiminum, þar sem allir hefði gott af því að gefa ókunnugum faðmlag,“ segir Brody í tilkynningu frá H&M

Sjáið þessa flottu auglýsingu hér fyrir neðan og komið ykkur í hátíðargírinn. 






×