Innlent

Aðeins ein ferð á dag til Eyja

Vísir/Stefán
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur hafur aðeins farið eina ferð á dag á milli Eyja og Þorlákshafnar, þar sem nú stendur yfir viðgerð á stýribúnaði fyrir veltiugga ferjunnar. Vegna ölduhæðar við Landeyjahöfn hefur ekki verið hægt að fara þangað og útlit er fyrir að svo verði eitthvað áfram.

Verulega hefur því dregið úr samgöngumöguleikum á milli lands og Eyja og hefur flugfélagið Ernir hlaupið undir bagga og sett upp aukaflug á leiðinni á meðan á viðgerðunum stendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×