Tónlist

Aðdáendur ekki hrifnir af nýjasta útspili Ricky Martin

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tónlistarmaðurinn Ricky Martin er búinn að gefa út nýtt lag sem heitir Adios. Tvær útgáfur eru til af laginu, annars vegar á spænsku og hins vegar á ensku og frönsku.

Lagið er í anda tónlistar sem Ricky hefur fengist við síðustu ár en samt sem áður hefur lagið fallið í frekar grýttan jarðveg hjá aðdáendum hans. Eru margir sammála um að Ricky nýti sér sömu formúluna og hann hefur gert í fyrri lögum og að það sé ekkert sem komi á óvart í Adios. Má lesa fjölmargar athugasemdir við lögin á YouTube þar sem aðdáendur viðra þessar skoðanir sínar.

Ricky nýtur mikilla vinsælda í Suður- og Mið-Ameríku en hann fer á tónleikaferðalag um Mexíkó þann 3. október næstkomandi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×