Lífið

Aðdáandi nafna síns

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Gísli Marteinn er aðdáandi rapparans Gísla Pálma.
Gísli Marteinn er aðdáandi rapparans Gísla Pálma.
Gísli Marteinn Baldursson, fyrrverandi borgarfulltrúi, er aðdáandi rapparans Gísla Pálma. Gísli Marteinn staðfesti þetta á Twitter í gær, skömmu eftir að plata Gísla Pálma kom út.

„Er með nokkur járn í eldinum til að fá diskinn með flugvél hingað á næstu dögum,“ tísti borgarfulltrúinn fyrrverandi sem er búsettur í Boston, þar sem hann er við nám.

Plata Gísla Pálma kom út í gær og hlaut góðar móttökur. Hún setti sölumet í Smekkleysu og er vinsælasta platan í sögu verslunarinnar, ásamt plötunni Kveikur með Sigur rós. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×