Tónlist

AC/DC og GNR sameinuðust á sviði Coachella

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Fyrir helgi bárust þungarokksheimum þær undarlegu fregnir að Axl Rose úr Guns N‘ Roses hefði verið ráðinn nýr söngvari AC/DC, í það minnsta tímabundið. Ástæðan er sú að Brian Johnson sem starfað hefur með sveitinni síðan 1980 hefur verið skipað af læknum að leggja rokkið á hilluna vilji hann halda heyrninni. Það hefur nú verið staðfest á heimasíðu AC/DC að Axl Rose mun koma fram með sveitinni og klára þá tólf tónleika sem sveitin átti eftir á núverandi tónleikaferð sinni.

Fréttirnar hafa valdið aðdáendum beggja sveita nokkrum áhyggjum. Aðdáendur Guns N‘Roses óttast að þetta gæti trufla plön GNR þar sem allir upprunalegu liðsmenn þeirrar sveitar (nema Izzy Stradlin) hafa nýverið grafið stríðsöxina og tekið upp þráðinn að nýju. Aðdáendur AC/DC spyrja sig hvort rödd Rose passi mögulega við tónlistina. 

Það virðist þó ekki vera nein ástæða til þess að örvænta þar sem Guns N‘Roses hefur nú gefið það út að tónleikaferð þeirra hefjist ekki fyrr en í lok júní eða nokkrum vikum eftir að AC/DC klárar sína tónleikaferð.

Gestir Coachella tónlistarhátíðarinnar, sem fram fór í Kaliforníu um helgina, fengu svo óvænt smjörþefinn af því hvernig rödd Rose hljómar með lögum AC/DC þegar gítarleikarinn Angus Young steig á svið með Guns N‘Roses sem lék með honum lögin „Riff Raff“ og „Whole Lotta Rosie“ sem bæði eru úr lagabanka áströlsku rokksveitarinnar.

Athygli vakti einnig að Axl Rose sat alla tónleikana í sérsmíðuðum stól en hann meiddist nýverið á fæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×