Lífið

Á uppleið hefst að nýju á Stöð 2

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Fimm nýir þættir af þáttaröðinni Á uppleið verða sýndir á Stöð 2 í haust.

Sindri Sindrason er umsjónarmaður þáttanna og nú liggur leið hans til New York þar sem hann mun heimsækja ungar konur á framabraut þar í borg og fræðast um líf þeirra og störf.

Í fyrsta þættinum, sem sýndur verður á sunnudagskvöld klukkan 19.35, kynnumst við Elínu Eggertsdóttur sem starfar hjá Araca Group í New York.

Fyrirtækið hefur veðjað á verðlaunasöngleiki sem teknir hafa verið til sýninga á Broadway, eins og til dæmis Wicked og Book of Mormons.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×