Innlent

66°Norður úlpum stolið úr auglýsingu

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Óprúttinn aðili braut sér leið að úlpunni eins og sjá má þessum myndum.
Óprúttinn aðili braut sér leið að úlpunni eins og sjá má þessum myndum. Samsett
Bíræfnir aðilar hafa í tvígang brotist inn í auglýsingu í miðbæ Reykjavíkur og stolið úr henni 66°Norður úlpu.

66°Norður setti upp auglýsingu utan á strætóskýli í Lækjargötu í miðborg Reykjavíkur þar sem úlpu frá fyrirtækinu hafði verið komið fyrir innan í sérstöku gleri. Aðfaranótt fimmtudags sá sér einhver leik á borði, braut glerið og nældi sér í úlpuna.

Auglýsingin var sett upp á nýjan leik og nýrri úlpu komið fyrir en henni var stolið í nótt. Sömu aðferð var beitt, glerið brotið og úlpan tekin.

Ekki liggur ljóst fyrir hvort að sami aðili sé á bakvið úlpuþjófnaðinn en málið hefur verið kært til lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×