Innlent

300 nýjar íbúðir á Kirkjusandi

Atli Ísleifsson skrifar
Frumhugmynd sem á eftir að taka breytingum.
Frumhugmynd sem á eftir að taka breytingum. Mynd/Reykjvíkurborg
Samningur milli Íslandsbanka og Reykjavíkurborgar um uppbygg­ingu, skipulag og skiptingu Kirkjusandsreits var undirritaður fyrr í dag. Um er að ræða heildarskipulag fyrir lóðirnar Kirkjusand 2, þar sem höfuðstöðvar Íslandsbanka eru í dag og Borgartún 41, sem oft er kölluð Strætólóð.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að vinna við nýtt deiliskipulag fyrir reitinn sé þegar hafin og verði það kynnt fyrir hags­muna­aðilum og almenningi á næstu vikum og mánuðum, samhliða formlegu auglýsingarferli.

„Á Kirkjusandsreit er fyrirhuguð blönduð miðborgarbyggð. Reitnum verður skipt upp í nokkrar lóðir og er byggingarmagn í heild áætlað um 75 – 85 þúsund fermetrar. Um helmingur byggingarmagns verður atvinnuhúsnæði, skrifstofur og þjónusta, en gert er ráð fyrir um 300 nýjum íbúðum á svæðinu. Reykjavíkurborg mun ráðstafa þremur íbúðarhúsalóðum. Allar núverandi byggingar á reitnum, fyrir utan aðalskrifstofuhúsnæði Íslandsbanka, munu víkja til að rýma fyrir uppbyggingu.

Markmið með deiliskipulagi svæðisins er gera mannvænt og fallegt umhverfi í samræmi við áherslur í Aðalskipulagi Reykjavíkur.  Göturými verða hönnuð jafnt fyrir alla ferðamáta og lögð verður áhersla á fjölbreytt græn svæði, nærþjónustu og gæði byggðar. Gert er ráð fyrir almenningstorgi og listaverkum á svæðinu. Bílageymsla verður staðsett undir torginu og mun hún nýtast íbúum utan skrifstofutíma í bankanum.

Íslandsbanki hyggst sameina alla höfuðstöðvastarfsemi sína á einum stað á Kirkjusandi. Til þess að það megi verða ætlar bankinn að byggja um 7.000 fermetra viðbyggingu við suðvesturenda núverandi skrifstofuhúsnæðis. Áætlað er að framkvæmdir við viðbyggingu hefjist í lok þessa árs og að þær taki um 2 ár.“

Séð yfir hluta fyrirhugaðs byggingarsvæðis af svölum Íslandsbanka.Mynd/Reykjavíkurborg



Fleiri fréttir

Sjá meira


×