Innlent

2,3 milljarða króna halli í borgarsjóði

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Borgarsjóður rekur fagsviðin, meðal annars grunnskóla og þjónustu við fatlað fólk, Eignasjóð og Bílastæðasjóð.
Borgarsjóður rekur fagsviðin, meðal annars grunnskóla og þjónustu við fatlað fólk, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. vísir/gva
Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar til júní 2014 var staðfestur í borgarráði í gær. Þar kemur fram að rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar sé jákvæð um 3,7 milljarða króna og 1,5 milljörðum betri en gert var ráð fyrir.

Aftur á móti, ef eingöngu er litið til reksturs borgarsjóðs, sem er starfsemi sem fjármögnuð er með skatttekjum og þjónustugjöldum en ekki fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki borgarinnar, er niðurstaðan neikvæð um 2,3 milljarða.

Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sjálfstæðismenn í borginni gagnrýna að reksturinn sé 640 milljón krónum lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir og einnig að tap á borgarsjóði sé fjögur hundruð milljónum krónum meira en í fyrra.

„Þrátt fyrir hækkun útsvarstekna um tæpan einn milljarð er farið fram úr því sem var áætlað,“ segir Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. 

Birgir Björn Sigurjónsson, fjármálastjóri Reykjavíkurborgar, segir að helsta ástæða hallans sé lítil sala á byggingarrétti fyrri part ársins.

„Hins vegar segir reynslan okkur að seinni hluti ársins er tekjusterkari tími.“

Annað sem útskýrir hallann, að sögn Birgis, er þjónusta fyrir ríkið sem ekki hefur verið bætt upp með tekjum.

„Það var gríðarleg aukning á kostnaði vegna yfirtöku á málefnum fatlaðs fólks. Það koma vaxandi kröfur frá ríkisvaldinu um aukna þjónustu sem við fáum ekki bætta með auknum fjárlögum. Það sama á við um 240 milljóna halla vegna hjúkrunarheimila.“ 

Birgir ítrekar þó að heildarniðurstaðan sé betri en búist var við. „Í heildina séð er borgin með sterka fjárhagsstöðu og við erum ekki óróleg yfir þessu.“ 

Halldór segir heildarniðurstöðuna vera villandi. „Einn stærsti liðurinn sem færður er inn í tekjur er áætlun um hve mikið verðmæti íbúða Félagsbústaða hefur aukist á hálfu ári, sem er 2,4 milljarðar. Það er ekkert á bak við þetta þar sem eignirnar eru ekki til sölu. Ef maður tekur þennan lið út og sambærilegan lið frá því í fyrra kemur í ljós að rekstrarniðurstaðan er verri í ár en í fyrra,“ segir Halldór og bætir við að þetta kalli á uppstokkun og nýja hugsun í rekstri borgarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×