Innlent

17 ára stúlka talin hafa látist af völdum E-töflu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Málið er til rannsóknar.
Málið er til rannsóknar.
Sautján ára stúlka lést aðfaranótt þriðjudagsins 2. júní á gjörgæsludeild Landspítalans í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.

Hún veiktist hastarlega á Akranesi aðfaranótt sunnudagsins 31. maí síðastliðinn eftir að hafa tekið inn E töflu að því talið er.

Málið er til rannsóknar hjá rannsóknardeild Lögreglunnar á Vesturlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×