Fótbolti

110 þúsund áhorfendur á leik United og Real í Ann Arbor á morgun

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Svona er mætingin á alla leiki Michigan Wolverines.
Svona er mætingin á alla leiki Michigan Wolverines. vísir/getty
Manchester United og Evrópumeistarar Real Madrid eigast við á morgun í lokaumferð riðlakeppni ICC-æfingamótsins í Bandaríkjunum.

Manchester United er á toppi riðilsins og getur komist í úrslitaleikinn, en Real er úr leik eftir töp gegn Inter og Roma í fyrstu tveimur leikjum liðsins.

Leikurinn annað kvöld, sem hefst klukkan 20.00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport, fer fram á heimavelli háskólaruðningsliðsins Michigan Wolverines í Ann Arbor í Michigan-ríki, en hann er jafnan kallaður „Stóra húsið“.

Uppselt er á leikinn, en 109.981 áhorfandi verður á vellinum á morgun. Mest hafa 115.109 manns horft á leik á þessum velli, en það met var sett síðasta haust.

Aldrei áður hafa svo margir horft á knattspyrnuleik í Bandaríkjunum, en áhuginn er mikill þar í landi þar sem heimsmeistarakeppninni er nýlokið. Þar komst bandaríska landsliðið upp úr dauðariðlinum og vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína.

„Þið getið ekki stöðvað knattspyrnuna lengur. Þessi íþrótt er að ryðja sér rúms í Bandaríkjunum á öllum sviðum. Þetta er frábær stund sem við verðum að nýta okkur,“ sagði Jürgen Klinsmann, þjálfari bandaríska landsliðsins, á HM.

Komist Manchester United í úrslitaleikinn sem fram fer á Sun Life-vellinum í Miami á mánudaginn mætir liðið annaðhvort nágrönnunum og Englandsmeisturunum í Manchester City eða erkifjendunum í Liverpool.

„Það yrði risastórt ef United mætir City eða Liverpool í Miami,“ segir Robbie Mustoe, fyrrverandi leikmaður Middlesbrough sem nú starfar sem knattspyrnusérfræðingur NBC.

„Við sýndum alla 380 leikina í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og áhorfið var ótrúlegt. Enska úrvalsdeildin er stærri en nokkru sinni fyrr hérna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×