Lífið

10 ný lög sem þú ættir að hlusta á í vikunni (27. mars - 2. apríl)

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Grimes á tónleikum í Chicago.
Grimes á tónleikum í Chicago. vísir/getty
Grimes - REALiTi

Þetta lag er á mörkum þess að teljast nýtt enda orðið tveggja vikna gamalt. Það sleppur þó í þetta skiptið enda stór gott lag á ferðinni. Kanadíska tónlistarkonan Grimes vinnur nú að sinni fjórðu plötu og þetta lag rataði hvorki á þá þriðju né á þá sem er á leiðinni. Hún ákvað því að senda það strax frá sér. 



Rihanna - Bitch Better Have My Money

Laginu var um stund lekið á Soundcloud og sást á fleiri síðum en var kippt snögglega þaðan út. Eina leiðin til að nálgast það núna er í gegnum vefverslun iTunes.

Heimsendaspitt - Lord Pusswhip

Lord Pusswhip hefur framleitt tilraunakennt niðurrifship-hop frá árinu 2012 en hann vinnur nú í útgáfu á rappkassettu á íslenska plötufyrirtækinu Ladyboy Records. Takturinn er eftir Alfreð Drexler sem myndar hinn helminginn af sveitinni Psychoplasmics ásamt Pusswhip.



Kendrick Lamar - King Kunta

Önnur plata rapparans fékk heitið To Pimp a Butterfly er meistaraverk líkt og frumburður kappans. Ef þú finnur ekki fyrir snilldinni til að byrja með þá mælum við sterklega með því að þú hækkir duglega í græjunum og hlustir á plötuna hærra. 

Four Leaves Left - Moses

Four Leaves Left var stofnað í apríl 2014 og samanstendur af tveimur Akureyringum, Jóni Má og Árna Frey. Hljómsveitin er að vinna að sinni fyrstu þröngskífu og stefnir á að gefa hana út í sumar. 





Crooked Colors - Another Way

Crooked Colors er tríó sem gerir út frá Perth í Ástralíu. Hljómsveitin er tiltölulega ný og fáar upplýsingar um hana að finna en haldi hún áfram á sömu braut þá gæti það breyst.



Szymon - Golden 

Lög Szymon Borzestowski hafa vakið athygli að undanförnu. Því miður mun þeim ekki fjölga þar sem Szymon laut í lægra haldi í baráttu við þunglyndi fyrir tveimur árum. Fjölskylda hans fann upptökur eftir hann og er nú að gefa lög hans út. 



Tourist - Holding On

Williams Phillips gefur út tónlist undir listamannsnafninu Tourist. Í fyrra vann hann meðal annars með Sam Smith og á hluta í laginu Stay With Me. Nú er hann byrjaður að gefa út sitt eigið efni og það lofar góðu.





Tame Impala - Let It Happen

Tame Impala er verkefni Kevin Parker frá Perth í Ástralíu. Sveitin hefur starfað frá 2007 og gefið út tvær plötur. Sú síðari, Lonerism, kom út árið 2012 og vakti mikla lukku. Let It Happen er fyrsta lagið af væntanlegri plötu sveitarinnar.





Jamie XX - Gosh

Hinn breski Jamie XX er ein aðal driffjöðurin í The XX. Hann lék hér á landi á Sónar hátíðinni sem fram fór í febrúar. Plata hans, In Colour, er væntanleg á næstunni en spenntir aðdáendur geta forpantað hana og fengið þá um leið fjögur lög af plötunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×