Lífið

"Við höfum ekki sofið saman í fimm ár“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Erfiðleikar virðast vera í sambandi raunveruleikastjörnunnar Kourtney Kardashian og Scott Disick eins og sést í nýju myndbroti úr þættinum Kourtney & Khloe Take the Hamptons sem sýndur verður vestan hafs þann 30. nóvember.

Í myndbrotinu má sjá Kourtney og Scott tala um áfengis- og vímuefnavanda hans en hann er nýkominn úr meðferð.

„Það varð eins og vinna allan sólarhring að reyna að verða fullur og taka pillur og hugsa ekki lífið,“ segir Scott við sína heittelskuðu sem gengur með þriðja barn parsins.

„Ég held að það eigi eftir að taka okkur dágóðan tíma að finna út úr hlutunum,“ segir Kourtney og bætir við að þau gætu þurft að taka sér pásu.

„Hve mikla fjarlægð þarftu í viðbót? Við höfum ekki sofið saman í fimm ár,“ segir Scott áður en börnin þeirra, Mason, fjögurra ára og Penelope, tveggja ára trufla þau.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×