Heilsa

"Við ætluðum okkur að vera fljótari en hinir“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Lið ERGO í markinu
Lið ERGO í markinu mynd/wow cyclothon
Lokadagur hjólreiðakeppninnar WOW Cyclothon er í dag. Örninn TREK sigruðu í flokki tíu manna liða en í flokki fjögurra manna var það lið ERGO sem var hlutskarpast.

Í flokki fjögurra manna liða var það lið ERGO sem varð hlutskarpast. „Við ætluðum að vera fljótari en hinir,“ sögðu meðlimir þegar liðið mætti í mark. „Við hjóluðum saman, fjögur lið í holli, að Öxi en þá dróst eitt aftur úr. Þegar við komum að Reynisfjalli þá tókum við okkur aðeins á og prufuðum hin liðin.“ Á endanum kom liðið í mark örlítið á undan Team Cube.

Tíminn var tæpar 38 klukkustundir en liðin hjóla hringveginn um Hvalfjörð og Öxi. 

Alls hafa rúmar fjórtán milljónir króna safnast með keppninni en ríflega þúsund manns tóku þátt í keppninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×