Innlent

„Vagnstjórinn slapp með skrekkinn“

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Mildi þykir að ekki fór verr í hörðum árekstri í dag þegar strætisvagn lenti aftan á vörubíl með þeim afleiðingum að pall vörubílsins fór að stórum hluta í gegnum framrúðu strætisvagnsins. Viðbragðsaðilar telja að sólin hafi líklegast blindað ökumanninn. Nadine Guðrún Yaghi. Atvikið átti sér stað um hádegisbil í dag og var mikill viðbúnaður á staðnum.

Tveir voru fluttir á slysadeild eftir áreksturinn: bílstjóri strætisvagnsins og einn farþegi úr vagninum. Enginn er þó talin alvarlega slasaður og þykir það mikil mildi en eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var áreksturinn harður en strætisvagninn lenti aftan á vörubílnum sem var kyrrstæður. Pallur vörubílsins fór þannig að stórum hluta í gegnum framrúðu strætisvagnsins sem er töluvert skemmdur.

„Það er sólin sem er vandamálið. Vagnstjórinn sér ekkert fyrr en hann skellur á vörubílinn,“ segir Björgvin Ingvason, varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Það voru sjö manns í strætisvagninum þegar slysið átti sér stað, þar á meðal bílstjóri strætisvagnsins. Fólk var eðlilega í miklu áfalli. „Þeir voru skoðaðir á vettvangi og svo hvattir til að leita aðstoðar ef þeir fyndu til eftir óhappið,“ segir Björgvin og bætir við að farþegarnir hafi verið sóttir á staðinn.

Samkvæmt upplýsingum frá Strætó verður farþegum boðin áfallahjálp og eru hvattir til að hafa samband. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú málið.

Viðbragðsaðilar voru fljótir á staðinn í dag og var mikill viðbúnaður á vettvangi fram eftir degi.

Ari Jóhannes Hauksson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir að aðeins litlu hafi mátt muna að miklu verr færi. „Í þessu tilfelli hefur bílstjórinn verið afskaplega heppinn að stórslasast ekki. Hann virðist hafa sloppið með skrekkinn í þetta skiptið. Vörubílspallurinn var bara komin í fangið á honum og mikil mildi að ekki fór verr. Svo var fjöldi farþega í bílnum sem virðast hafa sloppið með skrekkinn líka,“ segir Arni.

Ari telur einnig að líklega hafi það verið sólin sem hindraði útsýni ökumannsins.  „Sólin er hérna ansi lágt á lofti og hún er ansi hættuleg þegar hún blindar ökumenn og ég held að það hafi verið svoleiðis í þessu tilfelli,“ segir Ari.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×