"Þykir leitt að hafa verið svona mikill fáviti“ Þórður Ingi Jónsson skrifar 28. ágúst 2014 18:00 Lennon áritar plötu fyrir Chapman. Chapman skaut hann til bana sex klukkustundum seinna.
Mark David Chapman, morðingi Bítilsins Johns Lennon, baðst afsökunar í síðustu viku fyrir „að hafa verið svona mikill fáviti“ þegar hann myrti Lennon fyrir 34 árum. Chapman lét þessi orð falla þann 20. ágúst þegar hann sótti um reynslulausn í áttunda skiptið. Beiðni hans um reynslulausn var neitað samhljóða þar sem það myndi „gera lítið úr alvarleika glæpsins.“ Chapman hefur þó sýnt góða hegðun í fangelsinu undanfarin ár. Chapman, sem er nú 59 ára, hlaut 20 ára til lífstíðar fangelsisdóm fyrir að skjóta Bítilinn fjórum sinnum í bakið fyrir utan heimili Lennons í New York 8. desember árið 1980. Að sögn Chapmans var hann þunglyndur og í sjálfsvígshugleiðingum á þessum tíma. Taldi hann að hann gæti hugsanlega aflað sér frægðar fyrir að myrða Lennon. Fyrr á þessum örlagaríka degi hafði Lennon áritað plötu fyrir Chapman og minnist hann þess að Bítillinn hafi komið vinalega fram við sig. „Á þessum tíma var ég ekki að hugsa um neinn annan en mig,“ sagði Chapman og bætti því við að hann gerði sér nú grein fyrir því að hann hefði ollið fjölda fólks sársauka. „Mér þykir það leitt að hafa valdið slíkum sársauka. Mér þykir það leitt að hafa verið svona mikill fáviti og fyrir að hafa valið rangan veg til dýrðar.“Chapman er enn giftur og héldu hjónin nýlega upp á 35 ára brúðkaupsafmæli. Chapman segist vera afar trúaður og segist vera tilbúinn til að taka út refsingu sína eins lengi og þörf er á.
Mest lesið Nefnd í höfuðið á tveimur mikilvægum konum í lífi þeirra Lífið Sophia Bush kemur út úr skápnum Lífið Grínari selur íbúð í Vesturbænum Lífið Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Lífið „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Lífið Aron passaði varla inn í bílinn Lífið Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Lífið Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Lífið Fágæt og falleg eign við Flókagötu Lífið Varð móðir sextán ára Lífið Fleiri fréttir Fágæt og falleg eign við Flókagötu Aron passaði varla inn í bílinn Nefnd í höfuðið á tveimur mikilvægum konum í lífi þeirra Grínari selur íbúð í Vesturbænum Sophia Bush kemur út úr skápnum „Hann var langt á undan sinni samtíð“ Will Smith hrifinn af akureyrsku hjartaljósunum Ebba Katrín valin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar Logi Geirs og Inga Tinna eiga von á barni Varð móðir sextán ára Heyrt kjaftasögurnar um eldri mennina sem stýri henni Japaninn sló heimsmet í Hlíðarfjalli Lekker hæð listakonu til sölu „Stundum finnst mér ég getað sigrað heiminn“ Svakalegasta atvinnuumsókn sem sést hefur á FM957 Vöknuðu fyrir allar aldir til að gera aðra atlögu Björgólfur og Skúli í stuði í Feneyjum Heimafæðing Örnu Ýrar: „Ekki eins hræðilegt og margir halda“ Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Stefnir Megan Thee Stallion fyrir meint áreiti á vinnustað Flugfreyjuhattar Icelandair frá tískurisanum Balenciaga fá nýtt líf Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Jón Jónsson selur glæsihús á Seltjarnarnesi Kynferðislegt ofbeldi: Kynlíf eftir áföll Karlakórinn Esja tók frægasta slagara Backstreet Boys Flott flutti ódauðlega slagara með Sálinni og Ásgeiri Trausta Myndaveisla: Pattra og Gugusar hressastar í drykkjarpartýi Steggjun endaði á árshátíð RÚV Allt klárt fyrir tilraun við heimsmet í Hlíðarfjalli Hvað ber að hafa í huga þegar hvolpur kemur á heimilið Sjá meira