Lífið

"ÞIð eruð geggjaðir sönglúðar“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Sönghópurinn Mr. Norrington, sem skipar þá Hrafn Bogdan Seica Haraldsson, Bjarna Daníel Þorvaldsson og Sigurð Sævar Magnúsarson, sungu skemmtilega syrpu í undanúrslitum Ísland Got Talent á sunnudagskvöldið.

Jón Jónsson skemmti sér konunglega yfir syrpunni.

„Mér fannst þetta glæsilegt. Og ég meina þetta á eins jákvæðan hátt og hugsast getur. Þið eruð geggjaðir sönglúðar,“ sagði Jón.

Sönghópurinn komst ekki áfram í úrslit Ísland Got Talent sem verða sýnd í beinni útsendingu á Stöð 2 þann 27. apríl.


Tengdar fréttir

Hvern ætlar þú að kjósa á sunnudaginn?

Næsta sunnudagskvöld fá áhorfendur Stöðvar 2 að sjá næstu átta atriði sem bítast um að verða á meðal þeirra sem keppa um tíu milljóna verðlaunafé í hæfileikakeppninni Ísland got Talent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×