Innlent

„Þeir sem vilja fara með vinnsluna til útlanda, þeir fara bara til andskotans“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði ummæli Píratans fyrir neðan allar hellur.
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði ummæli Píratans fyrir neðan allar hellur. Vísir/Vilhelm
Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ekki par hrifinn af orðum Heiðrúnar Lind Marteinsdóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sem hún lét falla í kvöldfréttum Stöðvar 2 þess efnis í gær að sjávarútvegsfyrirtæki íhugi að flytja fiskvinnslu að einhverju leyti erlendis vegna mikillar styrkingar krónunnar.

Þingmaðurinn tók til máls undir liðnum störf þingsins og sagði að orð Heiðrúnar hefðu komið honum á óvart.

„Ég velti fyrir mér hvort að greinin ætli að snúa baki við þeim gæðum fiskvinnslunnar sem fylgja því að nota ferska vatnið okkar og hreinleika íslenskrar náttúru sem hefur verið eitt af aðalsmerkjum útflutningsgreinarinnar. Og er talsmaðurinn búinn að gleyma hruninu þegar gengið féll um tugi prósenta árið 2007, þegar tekjur útgerðarinnar margfölduðust og arður og hagnaður greinarinnar fór í sögulegar hæðir. Á sama tíma hrundi kaupmáttur launafólks í landinu og skuldir fiskverkafólksins upp í rjáfur,“ sagði Ásmundur og bætti við að fiskverkafólk hafi samt mætt í vinnu og staðið sína pligt.

„Nú þegar við erum að fást við tímabundið vandamál sem kemur af mikilli velgengni í landinu þá kemur talsmaður sjávarútvegsfyrirtækja og hótar því að fara með fiskinn úr landi.“

Ásmundur sagði að það væri nóg af fólki hér heima sem vilji vinna fiskinn hér.

„Þing og þjóð lætur ekki hóta sér svona. Það hótar enginn okkur því að fara með fiskinn til útlanda, það bara kemur ekki til greina. Ég trúi því ekki að stór hluti þeirra sem hafa kvótann í höndunum taki undir þessi orð. Ég svara nú bara þessu fólki á sjómannamáli: þeir sem vilja vinnsluna til útlanda, þeir fara bara til andskotans,“ sagið Ásmundur en Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti þingsins, beindi því þá til þingmanna að gæta orða sinna.


Tengdar fréttir

Forstjóri HB Granda: „Við erum ekkert í neinum leik“

Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, segir að verði yfir það í dag hvort að áform bæjarstjórnar Akraness um uppbyggingu á hafnarsvæði bæjarins breyti einhverju um þær fyrirætlanir útgerðarinnar að flytja landvinnslu botnfisks frá Skaganum og til Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×