Fótbolti

„Tekið fáránlega vel á móti“ strákunum í Kína þar sem sjö nýliðar geta þreytt frumraun sína

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Strákarnir okkar í landsliðinu í fótbolta lentu í Nanning í Kína á laugardaginn eftir 30 tíma ferðalag en þar hefja þeir leik í æfingamótinu China Cup í hádeginu á morgun.

Ísland mætir gestgjöfum Kína í fyrsta leik og svo annað hvort Króatíu eða Síle í leik um gull eða brons á mótinu, en það fer eftir því hvernig leikurinn á móti Kína fer á morgun.

Öll lið mótsins dvelja á sama hótelinu í Nanning, að því fram kemur á heimasíðu KSÍ. Marcelo Lippi, þjálfari kínverska liðsins, tók vel á móti Heimi Hallgrímssyni þegar strákarnir okkar mættu í fyrsta skipti á hótelið en Lippi er maðurinn sem gerði Ítalíu að heimsmeisturum árið 2006.

„Það er tekið fáránlega vel á móti okkur hérna, bara eins og við séum einhverjar algjörar hetjur. Þeir fá mikið hrós fyrir þetta Kínverjarnir. Aðstæðurnar eru góðar og völlurinn flottur,“ segir Orri Sigurður Ómarsson, varnarmaður Vals, í viðtali við heimasíðu KSÍ en hann er einn sjö nýliða í hópnum.

Býst hann við því að spila á morgun? „Ég bara veit það ekki. Ég vona það, en ég veit það ekki. Skiljanlega mun Heimir nota menn sem hafa meiri reynslu en ef kallið kemur verð ég tilbúinn,“ segir Orri Sigurður.

Miðvörðurinn er einn sex nýliða sem spiluðu með U21 árs landsliðinu á síðasta ári en hinir eru Viðar Ari Jónsson úr fjölni, Böðvar Böðvarsson úr FH, Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður Nordsjælland, og hinir nítján ára gömlu atvinnumenn Albert Guðmundsson og Óttar Magnús Karlsson. Sigurður Egill Lárusson, leikmaður Vals, er svo elstur nýliðanna en hann verður 25 ára á árinu.

Leikur Íslands og Kína verður sýndur beint á Stöð 2 Sport HD á morgun klukkan 12.00 en báðir leikir Íslands á mótinu verða í beinni útsendingu.

Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá æfingu strákanan í Kína en fleiri myndir má finna á Facebook-síðu KSÍ. Allt viðtalið við Orra Sigurð má sjá í spilaranum efst í fréttinni.

Sigurður Egill Lárusson, Viðar Ari Jónsson, Albert Guðmundsson, Böðvar Böðvarsson, Óttar Magnús Karlsson og Orri Sigurður Ómarsson bíða allir spenntir eftir sínum fyrstu A-landsliðs mínútum.mynd/ksí
Rúnar Alex Rúnarsson, markvörðurinn efnilegi, er einnig nýliði í hópnum.mynd/ksí
Þjálfarateymið Helgi Kolviðsson, Heimir Hallgrímsson og Guðmundur Hreiðarsson eitraðir í Kína.mynd/ksí

Tengdar fréttir

Sjö nýliðar fara til Kína

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari tilkynnti í dag leikmannahópinn sem fer til Kína og tekur þátt í China Cup.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×