Lífið

"Stattu nakin/n fyrir framan spegilinn og segðu: Ég er fjandi sexí“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngkonan Rita Ora prýðir forsíðu nýjasta heftis tímaritsins Cosmopolitan. Í viðtali við blaðið tjáir hún sig meðal annars um sambandsslitin við tónlistarmanninn Calvin Harris.

„Hann var réttur maður á röngum tíma. Ég var um það bil að fara á tónleikaferðalag og hann var líka út um allt. Maður getur ekki gert mjög mikið þegar maður sér ekki hvort annað. Ég dáist að fólki sem er í fjarsamböndum. Það er ótrúlegt afrek. Ég gæti það ekki,“ segir hún. Hún ræðir líka um kynlíf við tímaritið.

„Ég er mjög stolt af því að segja að ég hugsa um kynlíf. Það hugsa allir um það, hvort sem þeir segja það eða ekki. Fyrir mig er kynlíf leið til að kynnast manneskju - finna fyrir húð einhvers.“

Rita er mjög ánægð með líkama sinn.

„Maður þarf að læra að elska líkama sinn. Stattu nakin/n fyrir framan spegilinn og segðu: Ég er fjandi sexí. Þannig byrjar það.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×