Innlent

"Ótrúlegt að forætisráðherra landsins segi krónuna ónýta"

„Orð forsætisráðherra á fundi Samfylkingar um helgina eru með ólíkindum," segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. Hann var gestur úr útvarpsþættinum Reykjavík Síðdegis í dag.

Sigmundir var spurður álits um ummæla Jóhönnu Sigurðardóttur sem hún lét falla á fundi Samfylkingar um helgina. Á fundinum sagði Jóhanna að tveir kostir séu til staðar fyrir Ísland í gjaldmiðilsmálum. Annar sé sá að halda ekki í krónuna og taka upp evru með inngöngu í ESB. Hinn sé að afsala fullveldi Íslands í peningamálum með einhliða upptöku annars gjaldmiðils.

Sigmundir var ekki sáttur með ummæli forsætisráðherra. „Að forsætisráðherra skuli lýsa því yfir að gjaldmiðill landsins sé ónýtur er algjörlega óforsvaranlegt."

Hann bendir á að slík ummæli sé einungis til þess fallin að draga úr trúverðuleika gjaldmiðilsins. „Sama hvað menn ætla að gera, hvort þeir ætla að skipta um mynt tvíhliða eða einhliða eða ganga í Evrópusambandið þá hjálpar þetta ekki til."

„Gjaldmiðill hefur ekkert annað trúverðuleikann," sagði Sigmundur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×