„Manni finnst þetta vera viðloðandi MORFÍs“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 11. apríl 2014 13:30 Hér má sjá Má Vilhjálmsson moka skít fyrir utan Verzló fyrir fjórum árum. Vísir/GVA „
Maður veltir fyrir sér framhaldinu og hefur áhyggjur af þessu. Manni finnst þetta vera viðloðandi MORFÍs en engar aðrar keppnir sem skólinn tekur þátt í,“ segir Már Vilhjálmsson, skólameistari Menntaskólans við Sund. Ræðulið skólans keppir í úrslitum ræðukeppninnar MORFÍs gegn liði Flensborgarskólans í kvöld. Snemma í morgun stöðvaði lögreglan fjóra 17 ára pilta sem höfðu mokað miklu magni af hrossaskít við aðaldyr Flensborgarskólans. Lögreglan stöðvaði piltana er þeir voru að aka frá skólanum. Þeir sögðu þetta hafa átt að vera hrekk, en lögreglan lét þá moka öllum skítnum , sem reyndist vera hrossaskítur, upp í kerruna aftur og hreinsa vel til eftir sig. Már telur líklegt að þetta séu nemendur hans úr Menntaskólanum við Sund. Fyrir fjórum árum síðan sagði Vísir frá því að nemendur MS hefðu sett mikið magn af skít við aðaldyr Verzlunarskóla Íslands, áður en lið skólanna mættust í úrslitum MORFÍs. Már fór þá sjálfur á vettvang og hreinsaði til eftir nemendur sína. „Í ljósi sögunnar bendir ansi margt til þess að þeir sem voru að verki séu nemendur frá okkur,“ segir Már um gjörninginn við Flensborg í nóttVill gjarnan stöðva þettaMár segist hafa fundað með formanni Beljunnar, nemendafélagi MS, um málið. „Nýlega var kjörinn nýr formaður og ég fundaði með þeim báðum og félagsmálafulltrúanum. Við fórum yfir hvernig þetta mál væri vaxið. Már segist þreyttur á því að svona mál komi upp ítrekað í sambandi við MORFÍs. Hann segir ljóst að eitthvað þurfi að gerast. „Annaðhvort finna menn einhverjar leiðir til að stöðva svona lagað og menn læra að haga sér eða að skólarnir þurfi að velta fyrir sér hvort þetta sé þáttur í félagslífinu sem þeir vilja standa að.“Þannig að þið eruð jafnvel að skoða að draga liðið úr keppni?„Þó svo að mér þyki allt í lagi að tala við blaðamenn, og það er ekkert að því, þá er þetta gjarnan eitthvað sem maður vill losna við. Að þurfa að svara fyrir eitthvað sem einhverjir ættu að skammst sín fyrir. Maður vill gjarnan stöðva svoleiðis,“ svarar Már.Hefði farið og mokað sjálfur Skemmst er að minnast þess þegar MS mætti Verzló í úrslitum Morfís vorið 2010. Þá var skít dreift við inngang Verzlunarskólans. Fór svo að Már mætti sjálfur og mokaði skítinn af tröppum Verzló. „Ef strákarnir hefðu ekki verið látnir moka skítinn sjálfir hefði ég mætt á vettvang. Mér finnst að Flensborgarskólinn eigi ekki að bera neitt tjón af þessu. Ef þeir þurfa að bera einhvern kostnað af þessu á reikningurinn að sjálfsögðu að koma til okkar,“ segir Már. Már segir ræðulið MS skipað góðu fólki sem lendi í því að aðgerðir annarra nemenda skemmi fyrir þeim. „Það er hægt að heimfæra þetta yfir á fótboltann. Þar má finna fótboltabullur sem skemma fyrir. Félög eru sektuð og fá jafnvel heimaleikjabann ef stuðningsmenn þeirra ganga of langt. Almennt séð þykir mér ekkert óréttlátt að svona endurtekin ósæmileg hegðun hafi áhrif inn í félagslífið,“ segir skólameistarinn.
Tengdar fréttir Úrslitin í Morfís ráðast Menntaskólinn við Sund og Flensborgarskólinn í Hafnarfirði keppa í mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna í kvöld. Mikil stemning er fyrir keppninni. 11. apríl 2014 09:00 Hreinsuðu aðeins hluta hrossaskítsins "Þetta eru örugglega einverjir guttar, mjög í óþökk skólans þar innfrá, sem voru eitthvað að vekja athygli á sér,“ segir Magnús Þorláksson, skólastjóri við Flensborgarskólann í Hafnarfirði. 11. apríl 2014 12:37 Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira
Úrslitin í Morfís ráðast Menntaskólinn við Sund og Flensborgarskólinn í Hafnarfirði keppa í mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna í kvöld. Mikil stemning er fyrir keppninni. 11. apríl 2014 09:00
Hreinsuðu aðeins hluta hrossaskítsins "Þetta eru örugglega einverjir guttar, mjög í óþökk skólans þar innfrá, sem voru eitthvað að vekja athygli á sér,“ segir Magnús Þorláksson, skólastjóri við Flensborgarskólann í Hafnarfirði. 11. apríl 2014 12:37