Lífið

„Má ég fá sæðið þitt lánað?“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Stórleikarinn og hjartaknúsarinn Brad Pitt er nýjasti gestur Zach Galifianakis í þættinum Between Two Ferns.

Zach spyr hann ýmsa, óþægilegra spurninga eins og hans er von og vísa. Byrjar hann á því að spyrja Brad, sem hann kallar Bradley Pitts, hvenær hann hafi misst sveindóminn.

„Núll ára?“ spyr Zach en Brad vill ekki svara. Vill hann ekki heldur vita hvernig Zach missti sveindóminn. 

Zach spyr Brad líka af hverju hann fari ekki í sturtu og hvort hann megi fá sæðið hans lánað. 

Brad reynir að koma verkefnum sínum á framfæri, kvikmyndinni Fury og góðgerðarsamtökum, en Zach reynir að slá hann ítrekað út af laginu eins og sést í meðfylgjandi myndbandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×